Stormurinn
Nafn: Stormur
Aldur: Fæddur 28.ágúst 2003
Tegund: Labrador Retriever án ættbókar
Faðir: Skaftár Filipus
Móðir: Carmen (óættbókafærð)
HD/ED: AA/AA
Augnsjúkdómar: Stormur fór í augnskoðun hjá Dagmar Völu dýralækni sem er að sérhæfa sig í augnlækningum, árið 2009, augun virtust alveg eðlileg við skoðun, þó var að sjá ör í vinstra auga sem líklega hefur orsakast af slysi.
Stormur kom í mitt líf í ágúst lok 2005. Ég frétti fyrir algera tilviljun að það væri Labrador hundur sem að vantaði heimili, hann bjó með þáverandi eiganda sínum á verkstæði, draumur minn var alltaf að eignast hund en ég bjó í blokk þar sem að ekki var ein sátt um að fá hund. Ég fékk þó samþykki og tók Storm með mér heim. Hann var með öllu óuppalinn en vildi öllum vel, ég var búinn að eiga hann í sirka mánuð þegar ég dauðsá eftir að hafa tekið að mér 2 ára óuppalinn 40 kg hund sem fyrsta hund.. Svo fór að við mættum á námskeið hjá Gallery Voff, það var nú hlegið að mér, ég var langminnst á námskeiðinu með stærsta hundinn. Það gekk mjög illa til að byrja með en að lokum þá kláruðum við námskeiðið með 9,03 og gullpeninginn eftirsótta.
Síðan tók ég þá ákvörðun að gelda hann og var hann geltur í desember sama ár. Þegar ég fór að grennslast fyrir um söguna hans þá kom það mér ekki á óvart að hann skyldi vera erfiður, þegar ég fékk hann þá var ég eigandi númer 5 frá 8vikna aldri til tveggja ára aldurs.
Eftir erfiða byrjun þá lá leiðin bara uppá við. Með okkur þróaðist frábær vinátta og við höfum brallað margt saman. Höfum tekið þátt í bronsprófum hjá Dobermann Íslands og náð einkunn inná Íslandsmótið. Síðan höfum við verið dugleg í hrossa smölun, göngutúrum og almennt skemmtilegri vinnu.
Hann er búinn að ferðast aðeins um Evrópu og í mars 2010 þá skelltum við okkur til Spánar og komum svo aftur heim um haustið.
Þegar þetta er skrifað þá er Stormur 9 ára (júlí 2012) og lifir góðu lifi. Við búum í lítilli íbúð í Breiðholtinu og njótum langra göngutúra og sveitaferða.
Stormur er einfaldlega besti hundurinn og ég er að eilífu þakklát fyrir að hafa fengið heiðurinn á að vera eigandinn hans og fylgt honum í gegnum lífið.
Fyrir neðan eru nokkrar myndir teknar af honum í gegnum tíðina, hægt að smella á þær til að sjá þær stærri.